Framtíðin kallar á
skýra stefnu
og sterka forystu.
Ég er reiðubúin
að leiða Framsóknarflokkinn
inn í nýja og
spennandi tíma.

Kæru félagar og vinir!

Ég er auðmjúk og þakklát fyrir það mikla traust sem grasrót Framsóknarflokksins hefur sýnt mér á 38. flokksþingi flokksins. Einnig vil ég þakka Ingibjörgu Isaksen fyrir snarpa og öfluga kosningabaráttu sem hefur verið skemmtileg - og flokknum nauðsynleg. Sem formaður Framsóknarflokksins heiti ég að leggja mig alla fram við að vinna samvinnuhugsjóninni brautargengi með þeim mikla mannauði sem er í flokknum um allt land; fólki úr ólíkum áttum sem brennur fyrir það að gera Ísland að betra landi en það var í gær.

Við þessi tímamót vil ég þakka Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans óeigingjarna starf og framlag í þágu Framsóknarflokksins. Á flokksþingi í dag flutti hann góða yfirlitsræðu yfir það sem Framsókn hefur áorkað á undanförnum kjörtímabilum í þágu þjóðarinnar. Sá listi er langur og eitthvað sem við getum verið virkilega stolt af. Ferill Sigurðar Inga er merkilegur fyrir margar sakir. Hann náði fyrst kjöri til Alþingis árið 2009 og hefur hann á sínum þingmannsferli hefur hann meðal annars gegnt embætti forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Á þeim tíma hefur hann sýnt þrautseigju og eljusemi í því verkefni að gera landið okkar betra á grundvelli samvinnuhugsjónirnar. Í störfum sínum hefur hann ávallt lagt sig fram við að huga að Íslandi öllu, og stuðla að framförum hringinn í kringum Ísland í gegnum þá fjölmörgu málaflokka sem hann hefur stýrt.

Takk fyrir stuðninginn og takk Sigurður Ingi fyrir samstarfið í forystu flokksins á undangengnum árum!

Mínar áherslur

Samvinna er lykillinn að því að nýta sameiginlegan slagkraft Framsóknarflokksins til að ná lengra, auðveldar miðlun hugmynda og þróun nýrra lausna á áskorunum fyrir Ísland og íslenskt samfélag.

  • Það hefur gengið illa að kveða niður þá verðbólgu sem hefur reynst þrálát um þó nokkurt skeið. Verðbólga hefur verið að aukast undanfarin misseri sem má einkum rekja til áhrifa hækkunar á ýmsum opinberum álögum og þjónustu auk hækkunar matvöruverðs. Verðbólguvæntingar haldast jafnframt yfir markmiði. Hækkandi verðbólga hefur haft það í för með sér að vaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands – sem hófst á síðasta ári – stöðvaðist og þrengt hefur að stöðu íslenskra heimila.

    Brýnasta verkefni íslensks samfélags er að ná niður verðbólgu til að vextir geti lækkað á nýjan leik. Það verður að nota samvinnuhugsjónina til að ná utan um hlutina eins og þeir eru til að hlúa að íslenskum heimilum. Þar verða stjórnvöld að leiða með góðu fordæmi, stuðla að aðhaldssömum ríkisfjármálum, halda aftur af eigin launahækkunum sem og hækkunum á opinberum álögum og þjónustu.

    Það er lykilatriði að kveða niður verðbólgu fyrir heimilin í landinu sem eru hjartað í íslensku samfélagi. Framsóknarflokkurinn þarf að komast aftur við eldhúsborðið. Það gerum við með því að tala með skýrum hætti fyrir raunhæfum lausnum á þeim viðfangsefnum sem heimilin standa frammi fyrir og grunnstefnu Framsóknarflokksins.

  • Það sem ræður mestu um lífskjör þjóða er öflugt atvinnulíf og geta þess til að skapa aukin verðmæti. Verðmætasköpun er forsenda velferðar. Til þess að geta áfram staðið undir framúrskarandi lífskjörum á Íslandi þurfa stjórnvöld, atvinnulíf og heimili að leggjast saman á árarnar – samvinnuhugsjónin er leiðarljósið.

    Þau framúrskarandi lífskjör sem hér fyrirfinnast byggir þjóðin á samkeppnishæfni útflutningsgreina landsins og að þær haldi áfram að skapa meiri verðmæti í dag en í gær. Burðarstólpar íslensk útflutnings eru ferðaþjónusta, sjávarútvegur og iðnaður.
    Tækifæri íslensks útflutnings eru óendanleg. Til þess að grípa þau verður að einfalda regluverk, minnka álögur á atvinnulífið og auka stöðugleika– þannig treystum við samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og tryggjum heimilunum áfram framúrskarandi lífskjör.

    Íslenskt atvinnulíf og lífsgæði heimilanna byggja jafnframt á landbúnaði sem er kjölfesta byggðar um allt land og lykillinn að fæðuöryggi þjóðarinnar. Nauðsynlegt er styðja við bændur og tryggja að þeir hafi tækifæri til að nýta þau sóknarfæri sem blasa við íslenskum landbúnaði.

    Samvinna er lykillinn að því að leita nýrra lausna fyrir íslenskan landbúnað til að tryggja bændum eðlileg starfsskilyrði og afkomu fyrir vinnuframlag sitt og stuðla að aukinni nýliðun í atvinnugreininni.

    Fjárfesta verður í tækniframförum þar sem tækifærin fyrir Ísland eru mýmörg hvort heldur sem er í ferðaþjónustu, sjávarútvegi, iðnaði eða landbúnaði. Það gerum við með því að stuðla að og ýta undir aukna nýsköpun og vöruþróun þvert á atvinnugreinar.

  • Menntun og hæfni er lykilforsenda þess að Ísland geti mætt áskorunum framtíðarinnar, sem felast meðal annars í örum breytingum á samfélagi, náttúru og tækni.

    Við verðum að gera betur í því að efla menntakerfið okkar en það viðfangsefni krefst samvinnu við kennara og skólastjórnendur.

    Höldum áfram að fjárfesta í menntun og ráðumst í kerfisbreytingar sem byggja á rannsóknum, sem munu skila meiri árangri fyrir framtíð unga fólksins.

  • Tungumálið okkar, íslenskan, sameinar okkur. Fjárfestum í

    tungumálinu og gerum það aðgengilegt - þannig að allir geti lært íslensku.

  • Frelsi og fullveldi þjóðarinnar eru undirstaða framfara. Velmegun er mest í landinu, þegar við ráðum okkar málum og auðlindum sjálf. Sjálfbær auðlindanýting er grunnurinn að þeim lífskjörum sem Ísland býr við í dag. Aðild að Evrópusambandinu mun ekki

    auka hagsæld á Íslandi og hagsmunum Íslands er best borgið utan þess. Halda skal áfram góðum og nánum samskiptum við Evrópusambandið á grundvelli EES-samningsins.

    Greiður aðgangur að helstu útflutningsmörkuðum þjóðarinnar er lykillinn að hagsæld, og því brýnt að Ísland sé í mikilli alþjóðasamvinnu og hagsmunagæsla Ísland sé efld til muna. Við stöndum með frænd- og vinaþjóðum okkar, styðjum við Grænlendinga og lífskjarasókn þeirra og leggjum áherslu á að alþjóðalög séu virt. Áframhaldandi samstarf í öryggis- og varnarmálum á grundvelli Atlantshafsbandalagsins verður áfram hryggjarstykki í utanríkismálum þjóðarinnar.

Líf og störf

Nýjast

Á náttborðinu

Í eyrunum

Framundan

Stuðningsgreinar

Lykilatriði í áframhaldandi sjálfstæði þjóðarinnar er full yfirráð yfir auðlindum Íslands til að tryggja velsæld á Íslandi.